Tendrun jólaljósa sunnudaginn 29. nóvember

Sunnudaginn 29. nóvember verður aðventumessa kl 15:00 í Kálfatjarnarkirkju á Vatnleysuströnd.

Sama dag kl. 17:00 verða jólaljósin tendruð á jólatrénu í Aragerði.

Séra Ragnar Gunnarsson flytur hugvekju, einnig mun kirkju- og barnakór Kálfatjarnarkirkju syngja nokkur jólalög.

Nemendur í 1. bekk syngja og heyrst hefur að einhverjir af þeim jólasveinabræðrum muni kíkja við og jafnvel með glaðning fyrir börnin í pokahorninu.

Krakkarnir í 10. bekk verða með heitt súkkulaði og annað góðgæti til sölu til styrktar lokaferðar þeirra.

Jólakveðja