Þriðjudaginn 16. mars nk. kl. 17:00 býður Virkjun, Flugvallabraut 740. Ásbrú, uppá skemmtilegan og fræðandi fyrirlestur. Magnús Scheving , höfundur Latabæjar, flytur létt og skemmtilegt erindi um hugsunarhátt frumkvöðla, mikilvægi nýsköpunar og tækifærin sem eru allt í kringum okkur. Áheyrendum gefst kostur á að spyrja Magnús um hvað eina sem þeim dettur í hug; allt frá Latabæ til Hvíta hússins í Washington en Magnús hóf m.a. nýlega samstarf við forsetafrú Bandaríkjanna; Michelle Obama við að hrinda af stað heilsuátaki á meðal barna í Bandaríkjunum. Allir velkomnir, ókeypis aðgangur
Virkjun
Flugvallabraut 740, 235 Reykjanesbær