Sýningin Pönnukakan hennar Grýlu í Álfagerði

Mánudaginn 15. desember mun Bernd Ogrodnik sýna leikritið Pönnukakan hennar Grýlu í sal Álfagerðis og hefst sýningin kl. 10:00. Það er foreldrafélag Leikskólans sem býður til sýningarinnar og eru eldri borgarar og foreldrar leikskólabarna sérstaklega hvattir til að mæta.

Bernd Ogrodnik er brúðulistamaður í fremstu röð í heiminum. Það er því mikill fengur að fá hann í heimsókn í Vogana með sýninguna Pönnukakan hennar Grýlu. Hann var með sýningu í Álfagerði fyrr í haust og þótti hún takast frábærlega.