Sveitarfélagið Vogar óskar eftir tilnefningum á íþróttamanni ársins fyrir árið 2022.
Íþróttamaður ársins verður að vera búsettur í Vogum eða keppa fyrir hönd íþróttafélags í sveitarfélaginu. Tilnefndir íþróttamenn skulu vera orðnir 16 ára eða eldri. Heimilt er að nefna ungling 14-16 ára sem keppir í flokki fullorðinna og hefur náð það góðum árangri að hann teljist á meðal þeirra bestu í sinni íþróttagrein.
Allar tilnefningar skulu vera rökstuddar. Íþróttamaður ársins í Vogum hlýtur við útnefningu farandbikar til eins árs og bikar til eignar.
Val á íþróttamanni ársins verður tilkynnt sunnudaginn 8. janúar 2023 við hátíðlega athöfn í Tjarnarsal.
Hvatningaverðlaun sveitarfélagsins verða einnig veitt við sama tækifæri. Öllum íþróttafélögum og einstaklingum í Vogum er heimilt að tilnefna til hvatningaverðlauna. Verðlaunin hlýtur einstaklingur eða einstaklingar sem er framúrskarandi í ástundun, áhugasemi, hegðun innan vallar sem utan og er góður félagi og fyrirmynd annarra barna og unglinga.
Tilnefningar ásamt rökstuðningi sendast á gudmundurs@vogar.is eða í lokuðu umslagi á bæjarskrifstofu, stílað á íþrótta- og tómstundafulltrúa, fyrir 10. desember.
Reglugerð vegna kjörs á íþróttamanni ársins í Sveitarfélaginu Vogum