Sveitarfélagið Vogar auglýsir laust til umsóknar starf við félagsstarf aldraðra í Álfagerði

Um er að ræða fjölbreytt, gefandi og krefjandi starf sem snertir margar hliðar frístundastarfs. Unnið er í samstarfi við frístunda- og menningarfulltrúa og eldri borgara í Vogum að skipulagi og framkvæmd félagsstarfs.

Meðal verkefna:
• Umsjón með skipulagi og þátttaka í starfi í Álfagerði
• Umsjón með hádegisverð virka daga í Álfagerði
• Samskipti og samstarf við öldungaráð
• Samskipti við starfsfólk í félagsstarfi aldraðra í öðrum sveitarfélögum

Hæfni:
• Færni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði
• Íslenskukunnátta
• Menntun og/eða sem nýtist í starfi
• Skipulagshæfileikar
• Sveigjanleiki
• Hæfni til að vinna sjálfstætt

Um starfið:
• Starfshlutfall er 70%. Vinnutími er kl. 11:00 – 17:00 mánudaga – fimmtudaga og kl. 11 – 13 á föstudögum.
• Starfstími er frá 1. september til 10. júní.
• Umsækjandi þarf að vera 30 ára eða eldri
• Starfið heyrir undir frístunda- og menningarfulltrúa

Um framtíðarstarf er að ræða. Reiknað er með að viðkomandi hefji störf 15. ágúst. Upplýsingar um starfið gefur Stefán Arinbjarnarson, frístunda- og menningarfulltrúi, í síma 440 6225 eða á netfangi stefan@vogar.is

Laun fara eftir samningum Starfsmannafélags Suðurnesja og Launanefndar sveitarfélaga.

Umsóknarfrestur er til og með 31. júlí, 2013. Umsóknum skal skilað á netfangið stefan@vogar.is