Sunnudagaskólinn!

Fyrsti sunnudagaskóli vetrarins verður næstkomandi sunnudag 14. september kl. 11 í Félagsmiðstöðinni Borunni.  Þá fá öll börn afhenta fallega kirkjubók sem heitir Fjársjóðsbókin.   Í bókinni eru sögur af Mýslu og Músapésa sem munu taka mikinn þátt í sunnudagaskólanum í vetur.   En sjón er sögu ríkari og því hvetjum við öll börn til að koma í kirkjuna og kynnast starfinu af eigin raun.

Hlökkum til að sjá ykkur.