Sumarstörf í Vogum 2018


Eftirtalin sumarstörf eru laus til umsóknar hjá sveitarfélaginu sumarið 2018.

Stöður flokkstjóra í vinnuskóla
Flokkstjóri starfar undir stjórn forstöðumanns umhverfis og eigna. Hann stjórnar starfi vinnuskólahóps, kennir nemendum rétt vinnubrögð, vinnur með liðsheild, er uppbyggilegur og til fyrirmyndar. Flokkstjóri verður að hafa bílpróf og geta hafið störf í lok maí. Ekki er gert ráð fyrir frítöku á vinnutímabilinu. Flokkstjóri skal vera á 19. aldursári eða eldri.

Vélamaður í vinnuskóla
Starfið felst í slætti og öðrum tilfallandi störfum sem viðkomandi eru falin. Vélamaður þarf að hafa bílpróf og minni vinnuvélaréttindi. Ekki er gert ráð fyrir frítöku á vinnutímabilinu og þarf vélamaður að geta hafið störf í lok maí.

Umsjónarmaður leikjanámskeiðs
Leitað að einstaklingi til að sjá um námskeið sumarsins. Umsækjendur þurfa að geta skipulagt daglegt starf námskeiðanna og stjórnað ungmennum úr vinnuskóla sem verða til aðstoðar á námskeiðunum. Skilyrði er að umsækjandi sé á 19. aldursári eða eldri. 

Matráður/heimþjónusta
Starf matráðs felst í framreiðslu og eldun matar fyrir leikjanámskeið sveitarfélagsins og fyrir eldri borgara í Álfagerði. Einnig er unnið við sumarafleysingar í heimaþjónustu og þrif í Álfagerði ásamt fleiru.

Sumarafleysingar í íþróttamiðstöð
Um er að ræða störf við afgreiðslu, þrif, gæslu á böðum, laugarvörslu og annað tilfallandi. Starfsmaður þarf að standast hæfnispróf sundstaða, vera stundvís og geta unnið undir álagi. Skilyrði er að umsækjandi sé  20 ára eða eldri. Starfsmaður verður að geta hafið störf í júní. Ekki er gert ráð fyrir frítöku á tímabilinu. Unnið er á vöktum.


Starfsstöðvar sveitarfélagsins eru tóbakslausir vinnustaðir.

Umsóknarfrestur fyrir umrædd störf er til 12. mars 2018.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Suðurnesja.
Námsmenn jafnt sem atvinnuleitendur, karlar og konur eru hvött til að sækja um ofangreind störf.

Nánari upplýsingar um störfin veita frístunda- og menningarfulltrúi í síma 440-6225 og 8678854 og  forstöðumaður umhverfis og eigna í síma 8936983.
Umsókn sendist rafrænt á stefan@vogar.is eða skilist á pappír á skrifstofu sveitarfélagsins.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu félagsmiðstöðvar, í afgreiðslu íþróttamiðstöðvar eða á skrifstofu sveitarfélagsins.