Sumarstörf í Vogum 2016

Eftirtalin sumarstörf eru laus til umsóknar hjá Sveitarfélaginu sumarið 2016.

Stöður flokkstjóra í vinnuskóla

Flokkstjóri starfar undir stjórn forstöðumanns umhverfis og eigna. Hann stjórnar starfi vinnuskólahóps, kennir nemendum rétt vinnubrögð, vinnur með liðsheild, er uppbyggilegur og til fyrirmyndar. Flokkstjóri verður að hafa bílpróf og geta hafið störf í lok maí. Ekki er gert ráð fyrir frítöku á vinnutímabilinu. Flokkstjóri skal vera á 19. aldursári eða eldri.



Umsjónarmaður leikjanámskeiðs

Leitað að einstaklingi til að sjá um námskeið sumarsins. Umsækjendur þurfa að geta skipulagt daglegt starf námskeiðanna og stjórnað ungmennum úr vinnuskóla sem verða til aðstoðar á námskeiðunum. Skilyrði er að umsækjandi sé á 19. aldursári eða eldri. 

Sumarafleysingar í íþróttamiðstöð

Um er að ræða störf við afgreiðslu, þrif, gæslu á böðum, laugarvörslu og annað tilfallandi. Starfsmaður þarf að standast hæfnispróf sundstaða, vera stundvís og geta unnið undir álagi. Skilyrði er að umsækjandi sé  20 ára eða eldri. Starfsmaður verður að geta hafið störf í júní. Ekki er gert ráð fyrir frítöku á tímabilinu. Unnið er á vöktum.


Vinnuskóli, félagsmiðstöð og íþróttamiðstöð eru tóbakslausir vinnustaðir.



Umsóknarfrestur fyrir umrædd störf er til 1. apríl 2016.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Suðurnesja.

Námsmenn jafnt sem atvinnuleitendur, karlar og konur eru hvött til að sækja um ofangreind störf.

Nánari upplýsingar um störfin veita frístunda- og menningarfulltrúi í síma 440-6225 og forstöðumaður umhverfis og eigna gsm 893 6983.
Umsókn sendist rafrænt á stefan@vogar.is eða skilist á pappír á skrifstofu Sveitarfélagsins.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu félagsmiðstöðvar, í afgreiðslu íþróttamiðstöðvar eða á skrifstofu Sveitarfélagsins.Sumarstörf í Vogum 2016