Sumarstörf í Vogum 2013

Eftirtalin sumarstörf eru laus til umsóknar hjá Sveitarfélaginu Vogum sumarið 2013.

Stöður flokkstjóra í vinnuskóla

Flokkstjóri starfar undir stjórn forstöðumanns umhverfis og eigna. Hann stjórnar starfi vinnuskólahóps, kennir nemendum rétt vinnubrögð, vinnur með liðsheild, er uppbyggilegur og til fyrirmyndar. Flokkstjóri verður að hafa bílpróf og geta hafið störf í lok maí. Ekki er gert ráð fyrir frítöku á vinnutímabilinu. Flokkstjóri skal vera 20 ára eða eldri.

Umsjónarmaður leikjanámskeiðs

Leitað að einstaklingi til að sjá um námskeið sumarsins. Umsækjendur þurfa að geta skipulagt daglegt starf námskeiðanna og stjórnað ungmennum úr vinnuskóla sem verða til aðstoðar á námskeiðunum. Skilyrði er að umsækjandi sé  20 ára eða eldri. 

Vinnuskóli og félagsmiðstöð eru tóbakslausir vinnustaðir.

Umsóknarfrestur fyrir umrædd störf er til 1. maí 2013.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Suðurnesja.
Námsmenn jafnt sem atvinnuleitendur, karlar og konur eru hvött til að sækja um ofangreind störf.

Nánari upplýsingar um störfin veita frístunda- og menningarfulltrúi í síma 440-6225 og forstöðumaður umhverfis og eigna gsm 893 6983.
Umsókn sendist rafrænt á stefan@vogar.is eða skilist á pappír á skrifstofu Sveitarfélagsins.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu félagsmiðstöðvar, í afgreiðslu íþróttamiðstöðvar eða á skrifstofu Sveitarfélagsins.