Sumarstörf hjá Sveitarfélaginu Vogum

Eftirtalin sumarstörf eru laus til umsóknar hjá Sveitarfélaginu sumarið 2010

Staða yfirflokkstjóra í vinnuskóla

Yfirflokkstjóri þarf að hafa stjórnunarhæfileika, snerpu og samskipta- og skipulagsfærni. Yfirleiðbeinandi verður að vera leiðbeinendum sínum góð fyrirmynd, stundvís og hafa skýra framsetningu. Yfirflokkstjóri verður að hafa bílpróf og geta hafið störf í byrjun maí. Ekki er gert ráð fyrir frítöku á vinnutímabilinu. Æskilegt er að yfirflokkstjóri sé 25 ára eða eldri. Starfshlutfall 100%.

Staða flokkstjóra í vinnuskóla

Flokkstjóri starfar undir stjórn yfirflokkstjóra. Hann stjórnar starfi vinnuskólahóps, kennir nemendum rétt vinnubrögð, vinnur með liðsheild og verkvit, er uppbyggilegur og til fyrirmynda. Flokkstjóri verður að hafa bílpróf og geta hafið störf um miðjan maí. Ekki er gert ráð fyrir frítöku á vinnutímabilinu. Æskilegt er að flokkstjóri sé 20 ára eða eldri. Starfshlutfall 100%.

Sumarafleysingar í íþróttamiðstöð

Um er að ræða störf við afgreiðslu, þrif, gæslu á böðum, og laugarvörslu og annað tilfallandi. Starfsmenn þurfa að standast hæfnispróf sundstaða, vera stundvísir og geta unnið undir álagi. Skilyrði er að umsækjandi sé  18 ára eða eldri. Starfsmaður verður að geta hafið störf í júní. Ekki er gert ráð fyrir frítöku á tímabilinu. Unnið er á vöktum. Starfshlutfall 50%.

Vinnuskólinn og íþróttamiðstöðin eru tóbakslausir vinnustaðir.
Umsóknarfrestur er til 9. apríl 2010.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Suðurnesja


Nánari upplýsingar um störfin veitir frístunda- og menningarfulltrúi í síma 440-6224.
Umsókn sendist rafrænt á olafur@vogar.is eða skilist á pappír á skrifstofu Sveitarfélagsins.Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu félagsmiðstöðvarinnar eða á skrifstofu Sveitarfélagsins.

Frístunda- og menningarnefnd
Sveitarfélagsins Voga