Sumarnámskeið fyrir börn og unglinga

Menningarverkefnið Hlaðan hefur hafið undirbúning sumarnámskeiðs fyrir börn og unglinga á aldrinum 9-12 ára og 13-16 ára. Námskeiðið ber vinnutitilinn Kvik og leik en þátttakendur fá tækifæri til þess að kynnast hinum ýmsu þáttum kvikmyndagerðar.

Meðal þess sem þátttakendur fá þjálfun í er story-board gerð, handritagerð, hreyfimyndagerð (animation/stopmotion), kvikmyndataka, leik og eftirvinnslu (klipping og hljóð).

Umsjón verður í höndum þeirra Guðnýjar Rúnarsdóttur myndlistar- og kvikmyndagerðarmanns og Markúsar Bjarnasonar tónlistarmanns.
Gestakennarar verða Þórey Mjallhvít H. Ómarsdóttir (teiknari og hreyfimyndagerðarmaður), Hildigunnur Birgisdóttir (myndlistarmaður og kennari við Myndlistaskóla Reykjavíkur) og
Rebecca Moran (myndbandslistamaður).

Námskeiðið er haldið í samvinnu við Sveitarfélagið Voga og er styrkt af Menningarráði Suðurnesja.