Sumargleði eldri borgara

Sumargleði eldriborgara í Vogum var haldin miðvikudaginn 6. júní síðastliðinn. Þar var margt um manninn og glatt á hjalla. Nemendur í leikskólanum Suðurvöllum komu og tóku lagið, auk þess sem stiginn var dans eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Þökkum öllum skemmtilega samveru í vetur og hlökkum til að sjá ykkur öll hress í haust.

Tómstundafulltrúi og samstarfsfólk.