Suðurlindir

Í morgun skrifuðu þeir Róbert Ragnarsson bæjarstjóri í Sveitarfélaginu Vogum, Lúðvík Geirsson bæjarstjóri í Hafnarfirði og Ólafur Örn Ólafsson bæjarstjóri í Grindavík undir viljayfirlýsingu um stofnun félagsins Suðurlindir.

Markmið félagsins verður að standa vörð um sameiginlega hagsmuni sveitarfélaganna og íbúa þeirra varðandi
náttúruauðlindir í landi sveitarfélaganna við Trölladyngju, Sandfell og í Krýsuvík m.a. mögulega nýtingu jarðvarma og eignar- og nýtingarrétt hvers sveitarfélags fyrir sig.
 
Félagið verður alfarið í eigu opinberra aðila og munu sveitarfélögin þrjú fara með jafnan hlut. Lögsagnarumdæmi sveitarfélaganna Grindavíkur, Hafnarfjarðar og Voga liggja saman þvert um nokkur helstu jarðhitasvæði á Reykjanesi. Því er ljóst að þau eiga mikilla sameiginlegra hagsmuna að gæta á ýmsum sviðum.
 
Í yfirlýsingunni segir að það sé mikilvægt er að þessi þrjú sveitarfélög eigi gott samstarf um skipulag og framkvæmdir á skilgreindum auðlindasvæðum og marki sér skýrar áherslur í náttúruvernd og umhverfismálum á umræddum svæðum. Jafnframt vinni þau að sameiginlegri framtíðarsýn um þróun atvinnulífs og íbúðabyggðar og nýtingar orkuauðlinda fyrir sveitarfélögin á eigin vegum eða í samstarfi við önnur orkufyrirtæki.
 
Bæjarstjórum sveitarfélaganna er falið að undirbúa frekar formlega stofnun Suðurlinda og samþykktir fyrir félagið sem verða teknar til afgreiðslu hjá bæjarstjórnum á næstu vikum. Stefnt skal að því að félagið taki til starfa eigi síðar en í ársbyrjun 2008.