Styrkveiting úr framkvæmdasjóði

Sveitarfélagið sótti fyrr á þessu ári um styrk úr framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Sótt var um styrk vegna lagfæringa á stígum í námunda við Lambafellsgjá. Heildarkostnaður við verkefnið er áætlaður 725 þús.kr. Styrkfjárhæðin nemur helmingi kostnaðarins. Að mati þeirra sem vel þekkja til er brýnt að koma stígamálum á svæðinu í betra horf en nú er, þannig að landinu verði betur hlíft. Sveitarfélagið mun leita samstarfs við landeigendur og aðra hagsmunaaðila um þessa framkvæmd.