Stuðningur við fjölskyldur í Sandgerði, Garði og Vogum


Barnavernd Sandgerðisbæjar, Garðs og Voga óskar eftir eftir því að ráða starfsmann í tilsjón og/eða að gerast morgunhani. Um er að ræða áhugavert og gefandi starf í formi stuðnings við fjölskyldur. Unnið er skv. barnaverndarlögum nr. 80/2002. Leitað er eftir fólki með nauðsynlega þekkingu og hæfni til að mæta þörfum barna og foreldra hverju sinni.
Helstu verkefni
• Tilsjónaraðilar aðstoða foreldra við að sinna forsjár- og uppeldisskyldum sínum.
• Morgunhanar mæta snemma á heimili og vekja fjölskylduna ásamt því að efla heimilismeðlimi í að koma upp morgunrútínu sem stuðlar að árangri til lengri tíma.

Hæfniskröfur
Góðir samskiptahæfileikar
Sjálfstæði í vinnubrögðum
Áhugi og reynsla af vinnu með fjölskyldum
Hreint sakavottorð

Frekari upplýsingar um starfið
Algengast er að um 16-20 klst. sé að ræða á mánuði en vinnutími er sveigjanlegur og fer eftir þörfum hvers og eins. Starfið hentar einstaklega vel sem hlutastarf með námi. Ekki er krafist tiltekinnar menntunar eða reynslu, öll lífsreynsla getur komið að notum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sóley Gunnarsdóttir í síma 420-7500 eða í tölvupósti á soleyg@sandgerdi.is