Stóru-Vogaskóli í úrslit Skólahreysti



Keppnislið Stóru-Vogaskóla í Skólahreysti er komið í úrslit keppninnar, í fyrsta skipti sem lið skólans nær þessum áfanga. Alls var keppt í 10 riðlum á landsvísu, en okkar lið náði öðru sæti í sínum riðli. Auk sigurvegaranna í hverjum riðli komast tvö efstu liðin áfarm af þeim sem lentu í öðru sæti í sínum riðli. Lið Stóru-Vogaskóla lenti í efsta sæti þessara liða, með 43,5 stig.

Úrslitin verða 20. apríl í Laugardalshöll og verða í beinni útsendingu á RÚV.

Við óskum liði Stóru-Vogaskóla innilega til hamingju með þennan glæsta árangur og óskum þeim góðs gengis í úrslitakeppninni.