Stórir leikir hjá Þrótti um helgina

Körfuknattleikslið Þróttar í Vogum mætir FSu frá Selfossi í kvöld, föstudagskvöld kl. 20 í Íþróttamiðstöðinni Vogum.

Þróttur á von á að mörgum stórum liðum í heimsókn, svo sem Val og Breiðablik.
Hér er hægt að sjá leikjadagskrá liðsins í vetur.

Á sunnudaginn kl. 18 mætir handknattleikslið Þróttar varaliði Víkinga í 2. umferð bikarkeppni HSÍ. Þróttarar unnu Þrótt í síðustu umferð og stefna að því að sigra víkinga og komast í 8 liða úrslit.

Frítt er inn á báða leiki.