Stoppu-stuð í Vogum

Fyrr á þessu ári færðu fulltrúar Orkusölunnar sveitarfélaginu hleðslustöð fyrir rafbíla að gjöf. Nú hefur stöðinni verið haganlega komið fyrir við Vogabæjarhöllina, þannig að þeir sem heimsækja íþróttamiðstöðina og/eða sundlaugina geta nú stungið rafbílnum í samband og fengið hleðslu áð meðan notið er þjónustunnar. Við kunnum Orkusölunni bestu þakkir fyrir gjöfina!