Stofnfundur U3A Suðurnes verður haldinn laugardaginn 16. september kl.14:00 í sal MSS, Krossmóum 4, Reykjanesbæ. Allir eru hjartanlega velkomnir.

Svo lengi lærir sem lifir
Stofnfundur U3A Suðurnes
Rannsóknir sýna að það er öllum mikilvægt, allt lífið að viðhalda andlegri virkni, ekki síður þó komið sé á efri ár. Þess vegna er það þarft hverjum og einum að finna áhugaverð verkefni og tileinka sér nýja þekkingu á meðan að heilsan leyfir. Miðað er við að þriðja æviskeiðið hefjist um fimmtugt, strax þá er þörf á að huga að verkefnum þessa æviskeiðs.
Undanfarið hefur starfshópur starfað að undirbúningi stofnunar Háskóla þriðja æviskeiðsins á Suðurnesjum, U3A Suðurnes.  Hefur það verið gert með góðri leiðsögn frá U3A Reykjavík sem er hluti af alþjóðlegri hreyfingu U3A sem starfar í yfir þrjátíu löndum víða um heim með hundruðum þúsunda meðlima. Engin skilyrði eru fyrir þátttöku og engin próf tekin. Með orðinu háskóli er átt við upprunalegu merkingu orðsins sem er hópur fólks sem vill eyða tíma sínum í að fræðast.
Stofnfundur U3A Suðurnes verður haldinn laugardaginn 16. september kl.14:00 í sal MSS, Krossmóum 4, Reykjanesbæ.  Allir eru hjartanlega velkomnir.
Nú þegar hafa á fjórða tug einstaklinga skráð sig sem stofnfélaga en skráning mun halda áfram og standa út árið 2017.  Það er einkar ánægjulegt að á Suðurnesjum skuli  stofnuð önnur deild U3A á Íslandi. Frekari upplýsingar um starf U3A er að finna á heimasíðu deildarinnar í Reykjavík, www.u3a.is.
Undirbúningshópurinn; Jónína Holm, Garði, Halldóra Magnúsdóttir, Vogum, Sæunn Hulda Guðmundsdóttir, Sandgerði, Magdalena Olsen, Reykjanesbæ, Jenný Emilía Olsen, Reykjanesbæ, Erna M. Sveinbjarnardóttir, Garði
Stofnfundur U3A Suðurnes
laugardaginn 16. september 2017 kl. 14:00
í sal MSS, Krossmóum 4, Reykjanesbæ
Fundarstjóri og ritari taka til starfa
  Sagt frá undirbúningi stofnunar U3A Suðurnes
  Ávarp frá U3A Reykjavík
  Samþykkt kynnt og lögð fyrir
  Kosningar, formaður, fjórir stjórnarmenn, tvo skoðunarmenn reikninga
  Kaffi/tónlistaratriði
  Hugmyndir að námskeiðum
  Undirbúningshópur hættir, ný stjórn tekur við, ávarp formanns
  Önnur mál
  Fundi slitið/nýr formaður


  Gerðu það sem þú getur, með því sem þú hefur, þar sem þú ert. Theodore Roosesvelt