Stofnfundur mótorsmiðju fimmtudaginn 15. sept kl. 20:00 í gamla Skyggnishúsi

Fimmtudaginn 15. september kl. 20:00 verður haldinn stofnfundur mótorsmiðju.
Fundurinn verður í gamla Skyggnishúsinu og eru allir þeir sem áhuga hafa á málinu hvattir til að mæta.
 
Í mótorsmiðju er fyrirhugað að fram fari uppbyggilegt starf með ungmennum þar sem áhersla verður lögð á forvarnir, fræðslu og verklega kennslu af ýmsu tagi.
 
Nánari upplýsingar veitir Stefán Arinbjarnarson frístunda- og menningarfulltrúi.
Netfang: stefan@vogar.is
Sími: 440-6225