Sterkari starfsmaður – tölvur og samskipti - Vogar

Sterkari starfsmaður – upplýsingatækni og samskipti er ætlað fólki sem vill auka færni til að takast á við breytingar í starfi og auka færni sína í upplýsingatækni og tölvum. Tilgangur námsleiðarinnar er að auka færni námsmanna til að takast á við breytingar, stuðla að jákvæðu viðhorfi námsmanna til starfa, nýjunga, upplýsingatækni, samskipta og símenntunar og gera þá eftirsóknarverðari starfsmenn. Í náminu er lögð mikil áhersla á að námsmenn læri að læra, efli sjálfstraust sitt og lífsleikni. Námsaðferðir eru aðallega byggðar á hagnýtum viðfangsefnum sem nýtast námsmönnum bæði í leik og starfi.

Námsþættir:                                            klst.
Kynning                                                         1
Námstækni og símenntun                             16
Sjálfsstyrking og samskipti                           16
Vinnustaðamenning og liðsheild                    8
Skipulag, frumkvæði og efling í starfi           24
Tölvu og upplýsingatækni                            64
Færnimappa                                                 20
Mat á námi og námsleið                                 2
Samtals                                                    150

Kennsla fer fram í Stóru Vogaskóla og fer kennsla fram seinnipartinn þrisvar sinnum í viku og er áætlað að kennsla hefjist þann 14. febrúar. Kennt er eftir námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.  Tímafjöldi alls 150 kennslustundir. Verð 27.000 kr.
Frekari upplýsingar veitir hronn@mss.is eða í síma 412-5946.