Stefnumót við framtíðina-undirbúningur að skólastefnu

Stefnumót við framtíðina
undirbúningur að skólastefnu fyrir sveitarfélagið Voga verður haldið mánudaginn 10. nóvember, 2008 í Tjarnarsal

Kæru Vogamenn !

Ákveðið hefur verið að móta skólastefnu fyrir Voga. Nú gefst ykkur einstakt tækifæri til að móta skólastefnu fyrir samfélagið okkar á stefnumóti sem haldið verður mánudaginn 10. nóvember, 2008 kl. 19.00-20.30 í Tjarnarsal.

Dagskrá:
1. Stefnumótið hefst, Áshildur Linnet formaður fræðslunefndar
2. Hvað felst í mótun skólastefnu? Ólafur H. Jóhannsson, HÍ
3. Skólastefna í Garðinum, Oddný Harðardóttir bæjarstjóri
4. Hugarflug – Hugmyndir íbúa Voga að innihaldi skólastefnu
5. Stefnumóti frestað, Áshildur Linnet formaður fræðslunefndar

Eftir stefnumótið verður skipaður samráðshópur sem mun halda áfram að vinna með þær hugmyndir sem komu fram. Í samráðshópnum verða fulltrúar skólanna, félagsstarfsins, foreldra, ungmenna og nemenda.

Það er von okkar að sem flestir Vogamenn nýti sér tækifærið til að hafa áhrif á mótun stefnu bæjarins í þessum mikilvæga málaflokki.

Kveðja,
Fræðslunefnd