Starfsmaður íþróttamiðstöðvar

Auglýst er eftir starfsmanni í 100% starf í íþróttamiðstöð (vaktavinna).
Starfið felst í laugargæslu, gæslu í karlaklefa, þrifum og öðrum störfum er tilfalla í íþróttamiðstöðinni.
Hæfniskröfur eru frumkvæði, áræðni, góðir hæfileikar í mannlegum samskiptum, hæfni til að umgangast fólk á öllum aldri.
Starfsmaður verður að standast kröfur sem gerðar eru til starfsfólks sundstaða.

Nánari upplýsingar veitir Stefán Arinbjarnarson, sími 440 6224 stefan@vogar.is
Umsóknarfrestur er til 11. janúar, 2011.
Umsóknum skal skilað á netfangið stefan@vogar.is fyrir lok þess dags.