Starfsárið 2016-2017 hjá Ungmennafélaginu Þrótti

Bæklingurinn fyrir starfsárið 2016 - 2017 dreift í hús í dag og skráningarblaðið.

Þar verður starfsárið 2016 og 2017 kynnt fyrir Vogabúum og hvetjum við alla til að vera með okkur í vetur.

Sundið fer í gang núna á fimmtudaginn, fyrstu júdóæfingar verða þriðjudaginn 6. september.

Knattspyrna fyrir þau allra yngstu 8, flokki byrja þriðjudaginn 6. september. Knattspyrna fyrir 3, til 7, flokk hefjast að nýju 1. október en hlé verður í september fyrir þessa flokka. Við bendum á að opnar æfingar eru fyrir þessa flokka í þessari viku.

Leiklistarnámskeið og skokknámskeið verða auglýst sérstaklega á næstu dögum. Íþróttaskólinn fyrir þau allra yngstu á laugardögum byrjar í október.

ALLAR UPPLÝSINGAR UM SKRÁNINGAR OG HVAÐ VERÐUR Í BOÐI ER AÐ FINNA Í PÉSANUM FRÁ OKKUR.

Munið að skila skráningarblöðum í afgreiðslu Vogabæjarhallar eða senda með tölvupósti á netfangið throttur@throttur.net fyrir 6. september.

Ungmennafélagið Þróttur