Starf í félagslegri heimaþjónustu, 50% starfshlutfall.

Starf í félagslegri heimaþjónustu

Félagsþjónusta Sandgerðisbæjar, Sv. Garðs og Voga óskar eftir að ráða starfsmann í félagslega heimaþjónustu í Sveitarfélaginu Garði, 50% starfshlutfall.

Í starfinu felst m.a. að efla notendur þjónustunnar til sjálfshjálpar og stuðla að því að viðkomandi geti búið sem lengst á einkaheimili sínu.

Helstu verkefni eru:
• Þrif og almenn heimilisstörf
• Innlit og samvera
• Persónulegur stuðningur
• Aðstoð við innkaupaferðir
 
Verkefni félagslegrar heimaþjónustu geta verið breytileg eftir þörfum notenda. Mikilvægt er að starfsmaður hafi áhuga á og ánægju af mannlegum samskiptum. Félagsliðar og einstaklingar með aðra menntun og reynslu sem gagnast í starfi eru sérstaklega hvattir til að sækja um. Laun eru skv. kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
 
Umsóknarfrestur er til og með 18. september 2017

Umsóknum ásamt ferilskrá má skila rafrænt á netfangið una@sandgerdi.is

Einnig er hægt að skila inn umsókn á bæjarskrifstofuna í Garði, Sunnubraut 4, 250 Garði eða á bæjarskrifstofu Sandgerðisbæjar, Vörðunni, Miðnestorgi 3, 245 Sandgerði.

Frekari upplýsingar veitir Una Björk Kristófersdóttir, félagsráðgjafi, í síma 420-7500.