Sögustund í Selvogi - sunnudagsbíltúr og sagnakaffi


Sunnudaginn 19. október kl. 15:00 - 16:00  verður áhugaverður fróðleikur um mannlíf og sagnir í Selvogi í boði Biskupsstofu. Umsjónaraðili: sjf menningarmiðlun.

Sögustund verður  í Veitingahúsinu T-bæ í Selvogi þar sem gestum gefst kostur á að kaupa kaffi og meðlæti auk þess að hlusta á fróðleik þeirra Jóhanns Davíðssonar, lögreglumanns og Þórarins Snorrasonar, bónda á Vogsósum. Þeir þekkja báðir vel til í Selvogi og eru miklir áhugamenn um sagnir á þessum kyngimagnaða stað.
Selvogur tilheyrir Ölfusi. Leiðir þangað, t.d. um Krýsuvíkurveg og Þorlákshafnarveg, bjóða upp á hið fallegasta útsýni, bæði til fjalls og fjöru. Strandarkirkja í Selvogi, er eins og kunnugt er, vinsæl til áheita. Um tilurð kirkjunnar hafa myndast helgisagnir sem vitna um þann lífsháska sem sjómönnum var búinn úti fyrir þessari klettóttu, hafnlausu úthafsströnd. Á Vogsósum í Selvogi bjó séra Eiríkur (1638-1716) en margar galdrasögur eru til um hann. Jóhann og Þórarinn munu segja frá kirkjunni, Eiríki og mörgu öðru fróðlegu og skemmtilegu í Selvogi.
 
Fyrirtækið sjf menningarmiðlun hefur staðið fyrir sagnakvöldum víðsvegar á Reykjanesskaganum og gefið út bókina Sagnaslóðir á Reykjanesi I sem byggir á efni staðbundins sagnafróðleiks. Bókin verður á sérstöku tilboðsverði í tilefni dagsins.

Nánari upplýsingar hjá Sigrúnu Jónsd. Franklín, gsm 6918828/sjf@internet.is eða   www.sjfmenningarmidlun.is

Veiðimanna- uppskerumessa verður kl. 14 þennan sama dag  í Strandarkirkju þar sem allir eru velkomnir. Prestur sr. Baldur Kristjánsson.