Snjómokstur í Vogum

Erfiðar aðstæður eru til snjómoksturs í Vogum í dag (miðvikudaginn 6. mars 2013) sökum veðurhæðar. Sveitarfélagið hefur einungis á að skipa einu moksturstæki, tækið ræður sem stendur einfaldlega ekki við erfiðustu höftin. Það má því gera ráð fyrir að erfitt verði að hreinsa á þeim stöðum þar sem mikill snjór hefur safnast fyrir. Starfsmenn sveitarfélagsins gera sitt besta eftir því sem aðstæður leyfa. Við biðjum bæjarbúa um að sýna okkur skilning og þolinmæði.

Kveðja,

Ásgeir Eiríksson
Bæjarstjóri
Sveitarfélagið Vogar
Iðndal 2
190 Vogar