Slökkt á götulýsingum frá 1. júní til 20. júlí

Frá og með 1. júní er ákveðið að slökkt verði á götulýsingum

í Sveitarfélaginu Vogum og á Suðurnesjum í heild.

Einnig verður slökkt á Reykjanesbrautinni að skilum milli Hafnarfjarðar og Voga.

Kveikt verður aftur á lýsingunni 20. júlí nk.

Þetta er liður í sameiginlegri sparnaðaraðgerð sem tæknimenn

sveitarfélaganna hafa verið að vinna að með Hitaveitu Suðurnesja.

Íbúar eru beðnir að taka tillit til þessa  við akstur.