Skyndihjálparnámskeið fyrir íbúa Sveitarfélagsins Voga

Sveitarfélagið Vogar hefur í samvinnu við Rauða krossinn ákveðið að efna til námskeiðs í skyndihjálp fyrir íbúa sveitarfélagsins.
Námskeiðin standa yfir í tvær klukkustundir, og fara fram í Álfagerði.

Í boði eru þrjár dagsetningar:
Miðvikudagur 23. mars, miðvikudagur 30. mars og fimmtudagur 31. mars.

Þau hefjast kl. 19:30 alla dagana.

Námskeiðin eru íbúum sveitarfélagsins að kostnaðarlausu.

Áhugasamir eru hvattir til að skrá þátttöku á einhvern eftirfarandi hátt:
Á facebooksíðu sveitarfélagsins, þar sem námskeiðin er að finna undir „viðburðir“.
Með því að senda tölvupóst á netfangið skrifstofa@vogar.is
Með því að hringja á bæjarskrifstofurnar í síma 440 6200, milli kl. 08:30 og 15:00 virka daga.

Bæjarstjóri