Skyggnilýsingarfundur í Tjarnarsal fimmtudagskvöldið 5. nóvember

Kæru Vogabúar

Fimmtudagskvöldið 5. nóvember kl. 20:00 verður Þórhallur Guðmundsson miðill með skyggnilýsingarfund í Tjarnarsal.

Aðgangseyrir er 2.000 kr. og rennur ágóðinn í fyrirhugaða námsferð starfsmanna 2017. Einnig verður til sölu okkar rómaða chili-sulta.

Posi á staðnum. Allir velkomnir.

Starfsfólk leikskólans Suðurvalla