Skólaframkvæmdir

Skólaframkvæmdir
Nú er skólastarfið komið á fullt. Framkvæmdirnar við skólann eru þó aðeins á
eftir áætlun og má búast við því að fyrstu vikurnar verði töluvert rask á
meðan á framkvæmdum stendur. Mötuneytið verður ekki klárt fyrr en í næstu
viku.  Um miðjan september er gert ráð fyrir að skólinn verði formlega
vígður og verður þá íbúum boðið að skoða herlegheitin.