Skólabílstjóri

Skólabílstjóri - Stóru-Vogaskóli

Við Stóru-Vogaskóla vantar skólabílstjóra til afleysingar frá 23.ágúst - 17.desember 2010.
Bíllinn tekur 16 farþega. Starfshlutfall er 50% og þarf viðkomandi að sækja nemendur búsetta við Vatnsleysuströnd og keyra þá heim að loknum skóladegi. Einnig þarf hann að hafa umsjón með bílnum, þ.e. koma honum á verkstæði í smurningu o.fl. samkvæmt þörf.
Óskað er eftir einstaklingi sem er fær í mannlegum samskiptum og umburðarlyndur.
Umsóknarfrestur er til 20.ágúst 2010.


Áhugasamir hafi samband við Svövu Bogadóttur skólastjóra í síma 440-6250 / 849-3898 eða Jón Inga Baldvinsson aðstoðarskólastjóra.
Umsóknir má senda á skoli@vogar.is.