Skipulags- og matslýsingar Sveitarfélaginu Vogum

Í samræmi við 1. mgr. 30. greinar skipulagslaga nr. 123/2010 auglýsir Sveitarfélagið Vogar hér með kynningu á skipulags- og matslýsingu fyrir breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Voga 2008-2028 og deiliskipulag vegna áforma um skrifstofubyggingu, rannsóknastofu og stækkun fiskeldis við Vogavík.
Lýsingin er sett fram í greinargerð og má nálgast hana á heimasíðu sveitarfélagsins www.vogar.is. Hún liggur einnig frammi á skrifstofu sveitarfélagsins að Iðndal 2,  190 Vogum.
Skriflegum ábendingum við efni lýsingarinnar má skila til skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2,  190 Vogum, eða á netfangið skrifstofa@vogar.is. Þær skulu berast eigi síðar en 17. október 2014.


Vogum, 2. október 2014.
F.h. bæjarstjórnar,
Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri

Smellið hér til að sjá matslýsingu.