Skilafrestur framboðslista

Skilafrestur framboðslista

vegna sveitarstjórnarkosninga í
Sveitarfélaginu Vogum 26. maí 2018


Vakin er athygli á að framboðsfrestur rennur út kl. 12 á hádegi þann 5. maí.

Tekið er á móti framboðslistum í Álfagerði á milli kl. 10-12 þennan sama dag.


Leiðbeiningar fyrir þá sem hyggjast bjóða fram lista:


• Framboðslisti skal tilgreina skýrlega fullt nafn frambjóðenda, kennitölu þeirra, stöðu og heimili, til þess að enginn vafi geti leikið á því hverjir eru í kjöri.
• Gæta skal að reglum um hámarks- og lágmarksfjölda á lista.
• Listi með nægilegum fjölda meðmælenda þarf að fylgja. Tilgreina skal nafn meðmælanda, kennitölu hans og heimili.
• Tilnefna þarf tvo umboðsmenn.
• Tilgreina ber nafn framboðs.
• Heimilt er að skila inn með listanum beiðni um tiltekinn listabókstaf.

Frekari upplýsingar má finna á vef stjórnarráðs Íslands.


         Kjörstjórn Sveitarfélagsins Voga