Skilafrestur framboðslista

Skilafrestur framboðslista vegna sveitarstjórnarkosninga í Sveitarfélaginu Vogum 31. maí 2014

Vakin er athygli á að framboðsfrestur rennur út kl. 12 á hádegi laugardaginn 10. maí.

Tekið er á móti framboðslistum í Álfagerði á milli kl. 10-12 þennan sama dag.


Leiðbeiningar fyrir þá sem hyggjast bjóða fram lista:
• Framboðslisti skal tilgreina skýrlega fullt nafn frambjóðenda, kennitölu þeirra, stöðu og heimili, til þess að enginn vafi geti leikið á því hverjir eru í kjöri.
• Gæta skal að reglum um hámarks- og lágmarksfjölda á lista.
• Listi með nægilegum fjölda meðmælenda þarf að fylgja. Tilgreina skal nafn meðmælanda, kennitölu hans og heimili.
• Tilnefna þarf tvo umboðsmenn.
• Tilgreina ber nafn framboðs.
• Heimilt er að skila inn með listanum beiðni um tiltekinn listabókstaf.


Frekari upplýsingar má finna á:
     www.kosning.is/sveitarstjornarkosningar-2014



         Kjörstjórn Sveitarfélagsins Voga