Skemmtidagskrá á sunnudag færð inn í íþróttamiðstöð verði veður óhagstætt.

Kæru íbúar, þar sem veðurspáin er slæm fyrir sunnudaginn gæti farið svo að skemmtidagskrá í tengslum við tendrun jólaljósa verði færð inn í íþróttamiðstöð. Dagskráin verður með sama sniði og auglýst hefur verið og endar á að farið verður út í Aragerði og jólaljósin tendruð.

Hvetjum alla til að mæta og taka þátt í þessari notalegu stund í upphafi aðventunnar.

Jólakveðja,
Frístunda- og menningarfulltrúi