Skákgleði í Álfagerði á fimmtudögum

Kæru Vogabúar

Verið innilega velkomnir á fyrstu samveru nýstofnaðs skákfélags
í sal Álfagerðis næstkomandi fimmtudag, 7. febrúar, kl. 17:00.

Skákkunnátta er aukaatriði.

Við hvetjum foreldra til að mæta með börnum sínum og bara allt skákáhugafólk bæjarins.

Boðið verður upp á kaffi, kakó og vöfflur í tilefni dagsins.

Skák er skemmtileg og eflir hugsun.

Síðan verður teflt í Álfagerði á fimmtudögum frá kl. 17:00

Hlökkum til að sjá ykkur.

Stjórnin.