Síðasti dagur til að skila inn tilnefningu um Íþróttamann ársins

Íþróttamaður ársins verður að vera í íþróttafélagi
innan Íþróttasambands Íslands og vera búsettur í
Vogum. Tilnefndir íþróttamenn skulu vera 12 ára
á árinu eða eldri. Allar tilnefningar skulu vera
rökstuddar.

Íþróttamaður ársins í Vogum hlýtur
við útnefningu farandbikar til eins árs og bikar til
eignar. Val á íþróttamanni ársins verður tilkynnt
á þrettándanum þann 6. janúar 2013.


Tilnefningar ásamt rökstuðningi sendast á
stefan@vogar.is  eða í lokuðu umslagi í íþrótta –
og félagsmiðstöð í síðasta lagi 17.desember.

 

Íþróttamaður ársins 2011 Steinar Freyr Hafsteinsson