Sveitarfélagið Vogar býður íbúum sínum upp á að ná sér í sand ef þeir vilja sanda einhver svæði, t.d. götunar hjá sér eða stíga.
Búið er að salta flestar götur bæjarins en mikil hálka er enn í sumum húsagötum. Með þessu geta íbúar þá bætt um betur og sandað meira sjálf í sínu nærumhverfi.
Íbúum gefst kostur á að ná sér í sand við áhaldahús við Iðndal og er íbúum heimilt að ganga í þann sand að vild.
Umhverfisdeild