Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi halda atvinnufund í Vogum


Fimmtudaginn 2. desember, k.l. 12-13, verður hádegisfundur Samtaka Atvinnurekenda á Reykjanesi haldinn í Álfagerði, Vogum.

Á fundinum verður SAR kynnt stuttlega, en áhersla lögð á að ræða atvinnumál Vogamanna og þann stuðning sem SAR getur veitt í þeim efnum.


SAR mun halda fundi í öllum sveitafélögunum fyrir áramót og því mikilvægt að staðarmenn mæti á fundina í spjall um atvinnumál.
 

Áætlanir SAR eru að halda svona hádegisverðarfundi mánaðarlega og fara milli sveitarfélaga. Þannig verður einn svona fundur fimmta hvern mánuð í hverju sveitarfélagi.  Með svona fundum myndast góð tengsl á milli aðila í atvinnulífinu og skoðana- og upplýsingarskipti verða betri.
 

Í öllum tilfellum verða fundir settir stundvíslega klukkan 12:00 og slitið klukkan 12:55, svo fólk komist til vinnu aftur. 


Dagskráin SAR funda fram að áramótum er þessi:


Fimmtudaginn 02 desember, Vogar


Fimmtudaginn 09 desember, Sandgerði
 

Fimmtudaginn 16 desember, Garður
 

Álfagerði er salur í sameign Búmannaíbúðanna – beint á móti leikskólanum.
 

Fjölmennum í Álfagerði á fimmtudaginn kl. 12!
 

Nánari upplýsingar gefur 


Gunnar Ellert Geirsson, framkvæmdastjóri SAR

GSM: 697 7014