Sameiginlegur framboðsfundur í Tjarnarsal Miðvikudaginn 23. maí 2018

Sameiginlegur framboðsfundur í Tjarnarsal

Miðvikudaginn 23. maí 2018 verður sameiginlegur framboðsfundur allra framboðanna sem bjóða fram til sveitarstjórnarkosninganna 2018. Fundurinn verður í Tjarnarsal, og hefst kl. 20:00. Fjórir efstu frambjóðendur á hverjum lista verða með stuttar framsögur, að þeim loknum verða umræður og fyrirspurnir.

Íbúar sveitarfélagsins eru hvattir til að mæta og kynna sér málefni framboðanna og hlýða á málflutning frambjóðenda.