Sagnakvöld í Keflavíkurkirkju

Fimmtudaginn 19. mars kl. 20-22 verður sagnakvöld í Keflavíkurkirkju  í umsjón sjf menningarmiðlunar og styrkt af Manngildissjóði Reykjanesbæjar.

Tónlistarlíf í bítlabænum Keflavík
Vignir Bergmann, kennari og tónlistarmaður hefur spilað í hljómsveitum í gegnum tíðina og þekkir vel sögu tónlistarlífs í bænum. Hann mun segja frá sinni upplifun og jafnframt spila lög sem komu út á hljómdiskinum Sögur af Suðurnesjum.  

Saga skólahalds í Keflavík
Hildur Harðardóttir, f.v. kennari mun segja frá upphafi skólahalds í Keflavík á 19. öld. Allt frá því að kennslan fór fram  í einni stofu til skólabygginga nú-til-dags.

Bernska móður minnar
Sigrún Jónsd. Franklín menningarmiðlari og umsjónarmaður sagnakvölda mun segja frá tíðarandanum þegar móðir hennar var að alast upp í Keflavík á miðri 20. öldinni, einstökum atburðum, s.s. jólatrésbrunanum 1935 og ýmsu fleiru.
 
Tilvalið er að taka með sér vinkonur og vini, skella sér á sagnakvöld og njóta menningararfleiðar. Heitt verður á könnunni og allir eru velkomnir.

Bókin Sagnaslóðir á Reykjanesi I sem byggir á efni fyrri sagnakvölda verður á sérstöku tilboðsverði. Hljómdiskurinn Sögur af Suðurnesjum og bækur Hildar Sagnir úr Reykjanesbæ og Sagnir úr Garði og Sandgerði verða jafnframt til sölu.

Nánari upplýsingar
Sigrún Jónsd. Franklín, menningarmiðlari
gsm 6918828/ sjf@internet.is
www.sjfmenningarmidlun.is


Myndin var tekin þegar brunnurinn við Brunnstíg var vígður eftir endurgerð.