Sagnakvöld í Fræðasetrinu í Sandgerði

Sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 24. apríl kl. 20-22 verður sagnakvöld í Fræðasetrinu í Sandgerði  í boði Sandgerðisbæjar, Fræðasetursins og sjf menningarmiðlunar.

Síðasti geirfuglinn. Reynir Sveinsson, forstöðumaður Fræðasetursins mun segja sögur af síðasta geirfuglinum, sem var felldur við Geirfuglasker árið 1844 og öðrum nágrönnum hans, eins og skarfa og súlu.

Hvalaskoðun. Helga Ingimundardóttir, leiðsögumaður er þekkt m.a. fyrir hvalaskoðunarferðir sínar en hún hefur rekið hvalaskoðunarfyrirtækið, Moby Dick í mörg ár. Hún mun segja frá starfseminni, hvölum og ýmsu öðru sem  hún hefur kynnst í ferðum sínum.

Sáðmenn sandanna.  Friðrik G. Olgeirsson, sagnfræðingur tók saman efni í bókina, Sáðmenn sandanna á aldarafmæli landgræðslu árið 2007. Friðrik mun segja frá hvernig Íslendingar sneru vörn í sókn, stöðvuðu uppblástur á verstu foksvæðunum, björguðu byggðum og klæddu landið fögrum litum gróðurs á ný en Sandgerði var ein af þeim byggðum.

Á milli atriða verður fjöldasöngur og heitt á könnunni. Tilvalið er að taka með sér vinkonur og vini og skella sér á sagnakvöld og njóta menningararfleiðar.
Bókin, Sagnaslóðir á Reykjanesi I sem byggir á efni fyrri sagnakvölda verður á sérstöku tilboðsverði þetta kvöld.
www.sjfmenningarmidlun.is


Mynd SJF. Síðasti geirfuglinn.