Safnahelgi á Suðurnesjum


Söfn á Suðurnesjum hafa tekið höndum saman um að bjóða upp á sameiginlega dagskrá í annað sinn helgina 13. - 14. mars n.k. undir yfirskriftinni "Safnahelgi á Suðurnesjum".

Söfn, setur og sýningar á svæðinu eru mörg og fjölbreytt og því verður margt á döfinni. Ókeypis er á öll söfn.

Fulltrúar allra sveitarfélaganna fimm á Suðurnesjum hafa unnið sameiginlega að undirbúningi dagskrárinnar og er verkefnið stutt af Menningarráði Suðurnesja, Sparisjóði Keflavíkur og Ferðamálasamtökum Suðurnesja auk framlags sveitarfélaganna sjálfra.

Í dagskrá safnahelgarinnar kennir ýmissa grasa. Tónleikar, sýningar, leiðsagnir og margs konar uppákomur. Humarsúpa, saltfiskur og annað góðgæti verður í boði auk þess sem haldin verður uppskriftarkeppni á saltfiskréttum. Sjómannavalsar, draumráðningar, rokk og ról og harmonikkutónlist. Skessan í hellinum, Heimskautin heilla og Sköpun alheimsins svo fátt eitt sé nefnt.

Í boði er sem sagt mjög fjölbreytt menningardagskrá ásamt freistandi tilboðum um veitingar og afþreyingu fyrir alla fjölskylduna.

Sjá dagskrá:
safnahelgi.is