Reykjanesfólkvangur - Reykjaneshryggur. fræðslukvöld í Saltfisksetrinu í Grindavík

Sigrún Helgadóttir, líf- og umhverfisfræðingur fjallar um Reykjanesfólkvang sem er um 300 km2 að stærð og langstærsta friðlýsta svæðið sinnar tegundar hér á landi. Mikið er um jarðhitasvæði og margskonar náttúruminjar innan fólkvangsins. Árið 2004 tók Sigrún saman mjög ítarlega skýrslu fyrir stjórn Reykjanesfólkvangs um upphaf fólkvangsins og þær væntingar og hugmyndir sem fólk hafði um mikilvægi svæðisins og möguleika þess í framtíðinni. Hún mun segja frá skýrslunni, niðurstöðum hennar og hugmyndum.

Dr. Ármann Höskuldsson, eldfjallafræðingur hjá Jarðvísindastofnun Háskólans segir frá rannsóknum á Reykjaneshrygg sem fram fóru sumarið 2007. Verkefnið hlaut m.a. styrk frá „National Science Foundation“ í Bandaríkjum og rannsóknarsjóð Háskóla Íslands. Notast var við sérhannað skip, R/S Knorr, til jarðfræðilegra rannsókna á sjó. Leiðangrinum lauk 15 júlí ´07 og var gagnasöfnunin mjög árangursrík. Í leiðangrinum var lokið við að kortleggja Reykjaneshrygginn upp að landgrunnsbrún. Þá kom meðal annars í ljós gríðarmikil megineldstöð í landgrunnsbrúninni, sem nefnd hefur verið Njörður. Megineldstöðin er á stærð við Reykjanes, eða um 50 km í þvermál. Fróðlegt verður að heyra dr. Ármann segja frá leiðangrinum og ná fram umræðum um þessa mikilvægu fiskislóð Íslendinga.

Heitt verður á könnunni og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.