Reiðskóli Mána 2013

 Mætir í Vogana

Dagana 12. – 16. ágúst verður haldið reiðnámskeið i Vogunum fyrir börn og unglinga,
 7 ára og eldri.
Kennsla verður kl  9 – 11 fyrir lengra komna,
Kennsla verður kl 12 – 14 fyrir minna vana

Upplýsingar og skráning:
Sigurlaug Anna sími: 891-8757
Búnaður:
Börnin fá allan almennan búnað tengdan útreiðum, ss, reiðhjálma, reiðtygi o.fl.. Mikilvægt er að klæðanaður sé í samræmi við veður. - Auðveldara er að fara úr hlífðarfötum en að sækja þau langar leiðir. Við verðum í innsta hesthúsinu í hesthúsahverfinu í Vogum.
KENNSLA:
Börnunum er kennd almenn umgengni við hestinn, hvernig hægt er að nálgast hann og hvað eigi að varast. Þau læra að treysta hestinum. Þannig verða þau öruggari á baki. Lögð er áhersla á að byggja upp sjálfstraust nemenda. Reiknað er með einum hesti fyrir hvert barn.
Tekin eru fyrir atriði eins og áseta, taumhald, nöfn tengd reiðtygjum og umhirðu reiðtygja. Ýmsir hlutar líkamsbyggingar hestsins eru skoðaðir. Þá er nemendum gerð grein fyrir skilningarvitum hestsins t.d. sjón, heyrn og tilfinningu.
Kennslan er einstaklingsmiðuð, þar sem áhersla er lögð á færni hvers einstaklings. Nemendum er skipt í hópa miðað við kunnáttu og reynslu. Þá miðast kennsla hvers hóps við að sem flestir í hópnum fái góða þjálfun.
Markmiðið er að það sé skemmtilegt að læra og allir fái að njóta sín. Þeir sem hafa náð ákveðinni færni fara í leiki, leysa þrautir. Lengra komnir nemendur fá viðbótarnámsefni.


Verð: vikunámskeið 13.000,- kr.
 Nánari upplýsingar hjá Sigurlaugu Önnu í síma 8918757