Rausnarleg gjöf frá Fjólukonum.

Kvenfélagið Fjóla gaf eldri borgurum í Vogum hjartastuðtæki.
Tækið verður staðsett í Álfagerði sem er mikið öryggisatriði fyrir íbúa og gesti.
Hanna Helgadóttir afhenti þessa rausnarlegu gjöf til Stefáns frístundar- og menningarfulltrúa sem tók við henni fyrir hönd eldri borgara í Vogum.
Félag eldri borgara í Vogum þakkar Fjólukonum innilega vel fyrir.