Ræsting í Álfagerði

Laust er til umsóknar starf við ræstingar í Álfagerði. Álfagerði er þjónustumiðstöð eldri borgara í Vogum. Um 20 % starf er að ræða. Auk þess tilheyrir starfinu umsjón, eftirlit og þrif við útleigu á sal í Álfagerði. Æskilegt er að stafsmaður geti hafið störf hið fyrsta.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Suðurnesja. Umsóknir skulu sendast á stefan@vogar.is fyrir mánudaginn 28. september. Nánari upplýsingar veitir Stefán Arinbjarnarson, frístunda- og menningarfulltrúi í síma 440-6225.

 
Sveitarfélagið Vogar