Púttvöllur við Álfagerði

Púttvöllur við Álfagerði tekinn  í notkun

Síðasta haust hófst vinna við púttvöll við Álfagerði og er völlurinn nú nánast tilbúinn. Hann verður formlega tekinn í notkun föstudaginn 2. júlí kl. 16:00, en þá mun Gunnar Hallgrímsson slá fyrsta höggið á vellinum. Púttvöllurinn við Álfagerði er fyrst og fremst hugsaður fyrir eldri borgara í Vogum sem vonandi verða duglegir að nýta sér þessa skemmtilegu nýbreytni í bæjarlífinu.