Pistill bæjarstjóra

Framkvæmdaleyfi Landsnets
Í síðustu viku féll dómur í Hæstarétti, þar sem útgefið framkvæmdaleyfi sveitarfélagsins til Landsnets hf. vegna lagningar Suðurnesjalínu 2 var fellt úr gildi. Þar með eru áform Landsnets um lagningu línunnar úr sögunni, í bili a.m.k. Það þýðir að rafmagnsflutningar til Suðurnesja munu enn um sinn fara um þá einu línu sem fyrir er, Suðurnesjalínu 1. Áformað var að leggja Suðurnesjalínu 2 að mestu samsíða eldri línunni, en vegna meiri flutningsgetu var þó gert ráð fyrir að möstrin yrðu hærri og þar af leiðandi meiri sjónmengun. Eðli málsins samkvæmt fer stór hluti línunnar í gegnum lögsögu Sveitarfélagsins Voga, og því þarf sveitarfélagið að gefa út framkvæmdaleyfið, lögum samkvæmt. Þegar umsóknin lá fyrir voru öll skilyrði til útgáfu leyfisins uppfyllt, þ.e. fyrir lá umhverfismat, eignarhald á landinu (að undangengnu eignarnámi í sumum tilvikum), sem og lá staðfesting Skipulagsstofnunar fyrir. Dómur Hæstaréttar kveður hins vegar á um að umhverfismatið hafið verið ófullnægjandi. Það er vandséð að sveitarstjórnir með sitt skipulagsvald leggi mat á það hvort umhverfismat sé nægjanlega vel unnið eða ekki, sveitarfélagið taldi sig því ekki eiga neinn annan kost en að gefa út leyfið á sínum tíma þar sem öll skilyrðin voru uppfyllt. Næstu skref þessa máls er að Landsnet láti framkvæma nýtt umhverfismat, þar sem fyrirtækinu er samkvæmt dómnum gert að láta skoða betur aðra valkosti en loftlínu, þ.e. jarðstreng. Landsnet hefur fram til þessa talið kostnað við jarðstreng það mikið hærri en við loftlínu að ekki sé verjandi að ráðast í slíka framkvæmd. Í umræðunni um lagningu jarðstrengs hafa einnig komið fram þau sjónarmið að mikið rask fylgi lagningu jarðstrengs í hraun, með óafturkræfum áhrifum á ásýnd landsins. Hvað varðar loftlinu sé hins vegar sjónmengun, en minna um óafturkræf áhrif. Þegar öllu er á botninn hvolft skiptir afhendingaröryggið mestu máli, og því brýnt að finna lausn sem allir geta þokkalega vel við unað.

Nýr formaður Þróttar
Aðalfundur Ungmennafélagsins Þróttar var haldinn í gær, fimmtudag. Kjörinn var nýr formaður þessa síunga félags (sem nú er komið á níræðisaldurinn), Baldvin Hróar Jónsson. Honum og nýkjörinni stjórn félgsins eru færðar bestu árnaðaróskir með kjörið með ósk um blómlegt starf og gott samstarf. Í frétt af stjórnarkjörinu kom fram að 6 af 7 stjórnarmönnum hafa verið virkir iðkendur í barna- og unglingastarfi félagsins. Þetta kallar maður að halda tryggð við félagið sitt.

Annir hjá bæjarstjórn
Auk hefðbundins bæjarstjórnarfundar í vikunni mættu bæjarstjórnarmenn á nokkra aðra fundi. Haldinn var sameiginlegur fundur bæjarstjórnar, Öldungaráðs Suðurnesja og Öldungaráðs Sveitarfélagsins Voga, um hagsmunamál eldri borgara. Lögreglustjórinn og hans fólk komu í sína árlegu heimsókn til bæjarstjórnar og fóru yfir starfsemi embættisins, afbrotatölfræði og ýmislegt fleira er varðar löggæslu á svæðinu. Þá kom formaður stjórnar Brunavarna Suðurnesja til fundar við bæjarstjórn og kynnt áform um byggingu nýrrar slökkvistöðvar á næsta ári. Bæjarstjórn samþykkti svo á fundi sínum harðorða ályktun gegn áformum stjórnvalda um innheimtu vegatolla út frá höfuðborgarsvæðinu. Ályktunin er aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins.